Sæl öll, Fylkisvagninn mun leggja af stað aftur næsta mánudag 7. janúar 2013 samkvæmt sama plani og var fyrir áramót. Opið er fyrir skráningar á heimasíðu Fylkis en þau sem voru skráð í vagninn fyrir áramót þurfa ekki að skrá sig aftur.
Frístundavagn Fylkis mun frá og með 17. september 2012 til 30. apríl 2013 keyra samkvæmt neðangreindu skipulagi í tengslum við æfingar í Norðlingaholti, í Árbæjarskóla og á Fylkissvæðinu við Fylkisveg. Vagninn verður í fríi í kringum jólin (15. desember til 6. janúar) og í kringum páskana ( 23. mars til 1. apríl ).
Vagninn verður á ferðinni milli kl. 14:00 og 17:00. Iðkendur geta svo nýtt sér vagninn til og frá æfingum en ekki bara á æfingastað eins og fyrirkomulagið var.
Félagið áskilur sér rétt til að gera breytingar á þessari áætlun vegna mögulegrar breytinga á fjármögnum, æfingatímum og þátttöku.
Ferðirnar eru aðallega fyrir krakka í 1. til 4. Bekk í grunnskólum hverfisins: Ártúnsskóla, Árbæjarskóla, Selásskóla og Norðlingaskóla. Eldri krakkar geta nýtt sér ferðirnar sé pláss.
Skráning í frístundavagninn fer fram á heimasíðu Fylkis www.fylkir.com. Allir sem ætla að nýta sér vagninn verða að skrá sig ( líka eldri ).
Dagskrá vagnsins verður gefin út á heimasíðu Fylkis og er mikilvægt að fylgjast vel með þeim breytingum sem upp kunnu að koma. Það þarf ekki að greiða sérstaklega fyrir að fara með vagninum eins og staðan er núna.
Starfsmaður frístundaheimilis mun fylgja þeim sem skráðir eru í frístundaheimili að vagninum.
Þar sem enginn auka starfmaður verður í vagninum er það á ábyrgð foreldra að börnin fari út á réttum stað og skili sér á æfingu.
Þeir krakkar sem eru með töskur og föt geta geymt það á æfingastaðnum meðan æfingin er. Eftir að æfingu er lokið eru krakkarnir á ábyrgð foreldra.
Mikilvægt er að foreldrar séu vel vakandi fyrir því hvernig dagskrá hópsins er sem barnið er að æfa með. Æfingar geta fallið niður og stundum er æfingatíma breytt.
Vagninn bíður ekki eftir neinum heldur leggur af stað á umræddum tíma.
Vakni einhverjar spurningar skal þá hafa samband við íþróttafulltrúa Fylkis Hörð Guðjónsson hordur@fylkir.com / 571-5604. Einnig eru allar ábendingar vel þegnar.
Dagskrá alla virka daga
Brottfarastaður Tími Tími Tími
Ártúnsskóli 14:00 15:00 16:00
Árbæjarskóli 14:05 15:05 16:05
Selásskóli 14:11 15:11 16:11
Fylkissel 14:16 15:16 16:16
Norðlingaskóli 14:19 15:19 16:19
Selásskóli 14:23 15:23 16:23
Ártúnsskóli 14:30 15:30 16:30
Árbæjarskóli 14:35 15:35 16:35
Fylkishöll 14:39 15:39 16:39
Selásskóli 14:43 15:43 16:43
Fylkissel 14:48 15:48 16:48
Norðlingaskóli 14:50 15:50 16:50
Selásskóli 16:54
Fylkishöll 16:58
Dagskráin getur breyst og eru foreldrar hvattir til að skoða áætlun vagnsins á heimasíðu Fylkis.
Ártúnsskóli: Vagninn stoppar á hringtorginu við skólann.
Árbæjarskóli: Vagninn stoppar á bílastæðinu við Árbæjarkirkju / Ársel.
Fylkishöll: Vagninn stoppar við Fylkishöll ( að neðanverðu ).
Selásskóli: Vagninn stoppar á bílastæðinu við Selásbraut.
Fylkissel: Vagninn stoppar fyrir fram aðalinngang.
Norðlingaskóli: Vagninn stoppar á bílastæðinu við skólann.
Með kveðju,
Hörður Guðjónsson
Íþróttafulltrúi Fylkis / Sports director
vs. 571-5604
Gsm. 861-3317
Fax. 567-6091
No comments:
Post a Comment